Sjöfn á rætur sínar að rekja aftur til ársins 1932. Fyrirtækið var stofnað á Akureyri í framleiðslu á málningu og hreinlætisvörum og var á meðal stærstu framleiðslu fyrirtækja á Íslandi.
Árið 2001 hafði Sjöfn frumkvæði af sameiningum í málningar- og hreinlætisiðnaði þar sem urðu til fyrirtækin HarpaSjöfn og síðan Flugger og Mjöll Frigg.
Hlutverk og stefna Sjafnar hefur breyst úr því að vera iðnaðarframleiðslufyrirtæki í fjárfestingarfyrirtæki sem fjárfestir í óskráðum félögum og fasteignum.
Eigendur Sjafnar eru Baldur Guðnason og Steingrímur H. Pétursson, þeir eru jafnframt starfsmenn félagsins.
